InterNICHE



  About InterNICHE
  News
  Alternatives
  Conscientious Objection
  Resources
  How you can help
  Sponsors
  Site Map
  Links
  HOME

Introduction in other languages


 



InterNICHE Co-ordinator
Nick Jukes
42 South Knighton Road 
Leicester LE2 3LP 
England 

Tel/Fax +44 116 2109652

coordinator@interniche.org



 Introduction - Icelandic

 

Hvað telur þú að tilraunir á dýrum kenni þér?

Það eru engin rök fyrir því að drepa dýr til að kryfja þau og nota í tilraunum fyrir kennslu og þjálfun. Nóg er til af nútímalegum og nýstárlegum aðferðum sem skaða ekki dýrin og þær eru orðnar hefðbundinn þáttur í starfi margra háskóla.

Siðferðileg menntun án skaðlegrar notkunar dýra beitir aðferðir sem eru skilvirkari og eiga betur við kennslumarkmiðin. Háþróuð tölvutækni veitir fjölmarga möguleika, allt frá sýndarkrufningu og tilrauna-rannsóknarstofum á skjánum til fullkominna sýndarherma klínískra aðgerða. Hjálpartæki fyrir nútímalega þjálfun klínískrar færni og fyrir skurðaðgerðir eru meðal annarra smásjáraðgerðalíkön og afar raunverulegar gínur með gervilíffæri og innbyggð svörunarkerfi. Aðrar aðferðir styðjast við tilraunir sem nemar gera sem sjálfboðaliðar á sjálfum sér með örvun tauga og vöðva með aðstoð tölvutengds tilraunabúnaðar.

Dýr geta einnig verið hluti af siðferðilegri menntun. Þegar nemar í dýralækningum aðstoða reyndari samstarfsmenn við klínísk störf þar sem í hlut eiga raunverulegir sjúklingar, læra þeir klínískra hæfni í víðum skilningi, þar með talin umönnum sjúklinga og virðing fyrir lífi – andstætt tilraunum á dýrum sem kenna þeim að dýr eru einnota verkfæri. Þegar líffræðinemar læra um dýr í náttúrulegum heimkynnum sínum með aðferðum sem ekki eru ífarandi, fræðast þeir mun meira um hegðun dýra en tilraun á rannsóknarstofu gæti kennt þeim. Líkt og læknanemar kryfja gjafalík af mönnum, geta nemar í dýralækningum og líffræði krufið með siðferðilegum hætti dýr sem hafa dáið af sjúkdómum eða meiðslum.

Notkun dýra sem eru drepin og dýratilraunir munu ekki kenna nemum og fólki í þjálfun meira um viðfangsefnið en siðferðilegar aðferðir geta gert. Hins vegar eru það dýratilraunir einar sem stuðla að því viðhorfi að líf dýra skiptir ekki máli. Viljum við raunverulega að dýralæknum, rannsóknarfólki og læknum sé kennt að nota megi lifandi verur og fleygja þeim síðan? Á að taka dýr úr villtu umhverfi sínu eða loka þau í litlum búrum alla þeirra ævi og koma í veg fyrir að þau lifi eðlilega, til þess eins að þau endi á krufningarbakka eða verði búin undir ífarandi tilraunir?

Birtar rannsóknir hafa sýnt að þekking, hæfni og siðferðileg vitund verður best efld með framvirkum og annars konar aðferðum. Í stað þess að vera neydd til að ganga gegn siðferðilegu áliti sínu geta nemar og fólk í þjálfun notið betra umhverfis til menntunar án þess að nota dýr með skaðlegum hætti. Þú hefur vald til að stuðla að þessari breytingu. Hafðu samband við InterNICHE til að leggja þitt af mörkum til að stöðva slæma meðferð dýra. Veldu siðferðilega menntun!

News release
Other languages


 About InterNICHE
 News
 Resources
 Alternatives
 Conscientious
   Objection

 How you can help
 Sponsors
 Site Map
 Links
 HOME
o